Flokkar

Gaze

Væntanlegt

Létt og vel steypt hjól með vatns- og rykheldri bremsu. Frábært alhliða hjól sem þarf lítið viðhald og endist og endist.

9.900–10.900 kr.

Láttu mig vita þegar varan kemur aftur

Veldu uppselt afbrigði til að fá tilkynningu þegar það kemur aftur á lager.

4-5WT útgáfan er 129 grömm og tekur 55 metra af undirlínu.
6-7WT útgáfan er 139 grömm og tekur 90 metra af undirlínu.

Virkilega hagkvæmt, vatnshelt hjól með léttri byggingu og nútímalegu bremsukerfi

Hannað til að vera fullkomlega vatnshelt fluguhjól með afkastamiklu og áreiðanlegu bremsukerfi. Létt og þægilegt hjól fyrir langa daga á bakkanum.

Verðið er einstaklega hagstætt – þannig geta fleiri veiðimenn notið fleiri ánægjustunda við vatnið. Notaðu peninginn frekar í veiðileyfi!

Steypu- og CNC-vinnsla fyrir hámarksstyrk og léttleika

Sambland af þrýstisteypu (die-casting) og CNC skilar höggþolnu hjóli með lítilli þyngd. Megingrind hjólsins er framleidd með álsteypu og CNC-skurði, og hjólfótur ásamt jafnvægi spólu er samþætt í eina heild með grindinni til að hámarka léttleika og styrk.

Spólulok og bremsuhnappur eru unnin úr 6061-T6 álblöndu sem tryggir góða endingu

Vatnshelt, lokað bremsukerfi

Lokað og vatnshelt bremsukerfi úr Teflon- og ryðfríum stáldiskum tryggir mjúka og tafarlausa virkni bremsunnar.

Sérstaklega hentugt í sandi og ryki þar sem lokaða kerfið verndar búnaðinn og dregur úr viðhaldsþörf.

Afhverju álsteypa en ekki CNC?

Steypt hjól endast vel og eru létt svo lengi sem þau verða ekki fyrir miklum höggum. Gaze er eitt af þeim betur smíðuðu á markaðnum – án skarprar kanta, með sléttri áferð, lágri þyngd og þéttri virkni.

Fleiri vörur í þessum flokki

Fluguhjól

Skoða flokk