Skilmálar
Almennar upplýsingar
Rekstraraðili vefverslunar happafengur.is er Maxcatch ehf., kt. 620126-1360. VSK númer 160690.
Netfang: hallo@happafengur.is
Með því að versla í vefverslun happafengur.is samþykkir kaupandi eftirfarandi skilmála.
Verð
Öll verð í vefverslun happafengur.is eru gefin upp í íslenskum krónum og eru með inniföldum 24% virðisaukaskatti (VSK).
Sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram og er sýndur sérstaklega við lok pöntunar.
Verð í vefverslun er birt með fyrirvara um innsláttarvillur og áskilur Maxcatch ehf. sér rétt til að breyta verði án fyrirvara. Komi upp augljós mistök í verðlagningu áskilur fyrirtækið sér rétt til að falla frá afgreiðslu pöntunar og endurgreiða kaupanda að fullu hafi greiðsla farið fram.
Greiðslur
Greiðslur í vefverslun fara fram í gegnum örugga greiðslugátt Straums. Hægt er að greiða með debet- og kreditkortum.
Þegar greiðsla hefur verið staðfest hefst vinnsla pöntunar.
Afgreiðsla og afhending
Pantanir eru yfirleitt afgreiddar innan 0–3 virkra daga frá kaupum.
Vörur eru sendar með Dropp eða Póstinum. Sendingartími getur verið mismunandi eftir staðsetningu viðtakanda og þjónustu flutningsaðila.
Maxcatch ehf. ber ekki ábyrgð á töfum sem kunna að verða hjá flutningsaðilum.
Ef pakki er ekki sóttur og er endursendur til seljanda getur seljandi dregið frá endursendingarkostnað við endurgreiðslu.
Ábyrgð í flutningi
Ábyrgð á vöru flyst til kaupanda þegar vara hefur verið afhent flutningsaðila til afhendingar samkvæmt vali kaupanda.
Verði vara fyrir tjóni í flutningi eða týnist skal kaupandi hafa samband við seljanda eins fljótt og auðið er svo hægt sé að hefja rannsókn hjá flutningsaðila.
Lagerstaða
Þrátt fyrir að leitast sé við að halda lagerstöðu vefverslunar uppfærðri geta komið upp tilvik þar sem vara er uppseld þrátt fyrir að hún sé sýnd sem til á lager. Í slíkum tilvikum mun seljandi hafa samband við kaupanda eins fljótt og auðið er og bjóða annaðhvort sambærilega vöru eða fulla endurgreiðslu.
Skil og skipti
Samkvæmt lögum um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 hefur kaupandi rétt til að hætta við kaup innan 14 daga frá móttöku vöru.
Til að fá fulla endurgreiðslu þarf að skila vörunni innan 14 daga frá móttöku hennar. Vara þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Endurgreiðsla fer fram á sama greiðslumiðil og notaður var við kaupin.
Ef viðskiptavinur óskar eftir að skila vöru sem send var með pósti skal hafa samband á netfangið hallo@happafengur.is til að hefja skil. Kaupandi ber ábyrgð á vörunni þar til hún berst til Maxcatch ehf.
Kostnaður vegna sendingar við skil er á ábyrgð kaupanda nema um gallaða vöru sé að ræða.
Gölluð vara
Ef vara reynist gölluð skal kaupandi hafa samband við seljanda eins fljótt og auðið er á netfangið hallo@happafengur.is.
Viðskiptavinur á rétt á viðgerð, nýrri vöru eða endurgreiðslu samkvæmt lögum um neytendakaup.
Maxcatch ehf. greiðir sendingarkostnað vegna skil á gölluðum vörum.
Takmörkun ábyrgðar
Seljandi ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða vegna rangrar eða óviðeigandi notkunar á vörum sem keyptar eru í vefversluninni.
Breytingar á skilmálum
Seljandi áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er. Nýir skilmálar taka gildi við birtingu þeirra á vefnum.
Persónuvernd
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskipti í vefversluninni.
Persónuupplýsingar eru eingöngu notaðar til að vinna úr pöntunum og veita þjónustu við viðskiptavini. Upplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila nema þegar það er nauðsynlegt til að framkvæma greiðslu eða afhendingu vöru.
Lög og varnarþing
Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Komi upp ágreiningur skal reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.