Flokkar

1X-4X Taumar á spindli

Væntanlegt

Hver hefur ekki lent í því að ætla að breyta um taumaþykkt og þurfa að vaða í land, fæla allan fiskinn í burtu og róta svo í töskunni og leita að öðru taumaefni? Hvernig væri að vera bara með fjóra tauma dinglandi utan á sér eins og fólkið á youtube?

Töff og ódýr spindill sem þú krækir í veiðivestið. Litakóðaðar stærðir á taumaefninu sem þú getur svo bara dregið út og klippt. Engar flækjur. Vertu bara með þetta á þér og ekki missa spóluna út vatnið og týna henni eða flækja allt í klessu.

Fjórar 50metra spólur af taumum í stærðum 1X til 4Xfylgja með. Færð ekki betri díl.

Efni: Flúorkarbon

2.990 kr.

Láttu mig vita þegar varan kemur aftur

Skráðu netfangið þitt og við látum þig vita þegar varan kemur aftur á lager.

Til á lager
Stærð og styrkur á taumaefninu
Lína Styrkur Þykkt
1X 9 pund 0,25mm
2X 8 pund 0,23mm
3X 7 pund 0,20mm
4X 6 pund 0,17mm