Mini Tenkara pakki
Allt sem þú þarf til að byrja í Tenkara. Prófaðu eitthvað nýtt. Tenkara er þræl skemmtileg og hjól-laus nálgun á fluguveiði, bæði í vötnum og ám. Þessi stöng er hárfín og næm. Stöngin er afurð aldagamalla japanskra hefða og er í eðli sínu nymphing veiði, en línan er föst í endanum á stönginni og jafn löng henni. Þú setur svo hefðbundið taumaefni undir línuna og getur þannig ákveðið hvað þú vilt ná löngum köstum.
Stöngin er svo sveigjanleg að hún heldur fisknum á önglinum án þess að þurfa hjól. Með Tenkara stöng fer framsetningin á agninu í algjöran forgrunn og þá reynir á góða straumtúlkun og nákvæm köst. Hönnuð fyrir þurrflugur, en virkar líka vel með tökuvara og púpum.
Stöngin rennur saman og geymist í litlu slíðri og sterkum hólk úr áli. Með henni fylgir auka endi (passa að brjóta hann ekki), tenkara lína, nokkrar tenkara þurrflugur, flugubox, klippur, taumaefni, línuspóla og sterkur hólkur til að geyma stöngina í. Frábær í gönguferðir, og frábær fyrsta stöng fyrir krakka og þá sem vilja prófa fluguveiði án þess að eiga á hættu að eyða öllum deginum í að leysa flækjur.
Til í tveimur lengdum, 9feta og 12 feta.
Stöngin kemur með Tenkara línu, 5x taumi, flugum og fluguboxi og klippum.
12.990–13.990 kr.
Láttu mig vita þegar varan kemur aftur
Veldu uppselt afbrigði til að fá tilkynningu þegar það kemur aftur á lager.
Hvað er Tenkara?
Tenkara er hefðbundin japönsk aðferð við fluguveiði sem er þekkt fyrir fallega einfaldleika: aðeins stöng, lína og fluga.
Þægilegt korkhandfang & flækjulaus snúnings-toppur
Vistvænt korkhandfang tryggir öruggt og þægilegt grip fyrir betri stjórn í köstum. Nýstárlegur snúnings-toppur (swivel tip guide) dregur úr flækjuhættu, svo þú getir einbeitt þér alfarið að veiðinni.
Hvernig landarðu fiski án hjóls?
Það er einfaldara en margir halda. Þegar fiskur tekur hallarðu stönginni aftur og leiðir hann að þér. Þessi beina tenging gerir löndunina öðruvísi en með hefðbundinni stöng.
Hvar nýtist Tenkara-stöngin best?
Tenkara nýtur sín sérstaklega vel í lækjum og vötnum þar sem nákvæm framsetning skiptir sköpum. Frábær fyrir þurrfluguveiði en virkar líka vel með púpum.
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna
Tenkara er frábær inngangur að fluguveiði. Einfaldleikinn gerir börnum og byrjendum auðvelt að læra og njóta, á meðan reyndari veiðimenn fá ferska og krefjandi nálgun sem færir veiðina aftur í sína tærustu og gefandi mynd.