Flokkar

Premier X

Væntanlegt

Premier X er splunkuný uppfærsla á Premier stönginni sem hefur glatt þúsundir veiðimanna um heim allan í yfir áratug. Þessi útgáfa er með enn betra sæti úr fræstu áli fyrir fluguhjólið, og tveimur læsingar skrúfum sem halda hjólinu pikk föstu allan daginn. Stöngin er Moderate Fast action, kemur línunni langt út og hjálpar þér að leggja hana fallega niður. Góð alhliðastöng á ótrúlega fínu verði.

14.990–16.990 kr.

Láttu mig vita þegar varan kemur aftur

Veldu uppselt afbrigði til að fá tilkynningu þegar það kemur aftur á lager.

Léttari og snjallari

Upplifðu samspil frammistöðu og hönnunar með þessari gæðastöng. CNC-fræst hjólasæti, létt og sterk stöng úr 30T carboni. Vistvænt korkhandfangið tryggir þægilegt grip jafnvel í löngum köstunum. Með góðri þyngdardreifingu og jafnvægi sem tryggir áreynslulausa stjórn. Ekkert mál að kasta allan daginn. Þeir fiska sem róa!

Fjarlægð og framlagnin

Moderate Fast (miðlungs-hraðvirkt) action skarar fram úr bæði í langköstum og nákvæmri, fíngerðri framlögn. Grönn keilulögun tryggir mjúka og kraftmikla hleðslu fyrir skilvirk köst, sem gerir nákvæm langköst þægileg.

Keramík línuhringir

Útbúin MaxSelect keramískum stripping-hringjum og ofurléttum harðkrómhúðuðum snake-hringjum, ásamt stækkuðum topphring – allt hannað fyrir silkimjúk og langdræg köst.

Kemur í góðri tösku

Allar stangir frá MaxCatch koma í grjóthörðum cordura klæddum og fóðruðum geymsluhólkum sem þola ferðalög og hnjask. Þetta er stöng sem maður hendir í skottið á bílnum áhyggjulaus og fer með hvert á land sem er. Þú veiðir ekki mikið ef stöngin er heima er það?

Fleiri vörur í þessum flokki

Einhendur

Skoða flokk
Blackstar

Blackstar

15.990–17.990 kr.

TroutLite

TroutLite

14.990 kr.