Skyhigh Competition
Létt, hröð og næm stöng úr blöndu af 40T og 46T koltrefjum. Þetta er stöng úr efstu hillunni en verðið er ótrúlegt miðað við gæðin. Skyhigh Competition er kastar línum í gegnum vind með mikilli nákvæmni og leggur línuna með mikilli nákvæmni og mýkt.
Ef þú vilt gera vel við þig, en samt eiga afgang til að eyða í veiðileyfi og bensín, þá er þetta stöngin fyrir þig!
26.990 kr.
Láttu mig vita þegar varan kemur aftur
Veldu uppselt afbrigði til að fá tilkynningu þegar það kemur aftur á lager.
Smíðuð með Nano+ MAXSPIRAL III tækni, úr 40T og 46T japönskum koltrefjum frá Toray í fimm lögum til að ná mýkt og fjörðun. Þetta kemur út í léttri, hraðri og vel stilltri stöng sem hleður línuna djúpt og nýtir stöðuorkuna frábærlega – það skilar lengri köstum, betri stjórn og hraðri endurheimt eftir kast.
Skyhigh Competition er létt í hönd og sterk, sem gerir henni kleift að kasta bæði stórum straumflugum og smáum flugum með mikilli nákvæmni í styttri köstum.
Vandaðir íhlutir frá sæti að toppi
- Mjúk AAA+ kork-hjólastöng sem veitir gott grip og eykur úthald þess sem stendur á bakkanum.
- Hágæða stálleiðarhringir með nælon innleggjum sem tryggja slétt og hnökralaust línuflæði.
- Sterkt sæti fyrir hjólið með tveimur festingar hringjum og fallegu viðarinnskoti sem halda hjólinu á sínum stað og gleðja augað.
Ferðavæn í poka og röri
Stöngin er í fjórum hlutum sem gerir hana lipra fyrir ferðalög og flutning. Hún kemst auðveldlega fyrir í bíl, bakpoka eða handfarangri, þannig að þú getur tekið hana með þér í veiðiferðir hvert sem er. Maður veiðir ekki mikið á stöng sem maður nennir ekki að taka með sér.
Þetta er stöng sem sameinar mikla tækni, frammistöðu og vandaða smíð á praktískan og elegant máta – hentug fyrir alvöru veiðiferðir á þeim stöðum þar sem þú vilt fá sem besta upplifun.
Skyhigh competition kemur í nettum poka (sokki) og níðsterku koltrefja röri með skrúfuðu loki. Þetta er græja sem þú tekur með þér hvert sem er og hefur engar áhyggjur af á ferðalaginu.
Fleiri vörur í þessum flokki
Einhendur